II vörumerkið „Ég“

Að markaðssetja sjálfan sig er mjög athyglivert og erfiðara en það sýnist.  Í greininni The brand called you eftir Tom Peters  er fjallað um markaðssetningu á einstaklingnum sjálfum og gildi þess fyrir t.d. starfsframa. Eitt af því sem Tom Peters  ráðleggur  er að byrja strax á því að skilgreina sig sem vörumerki og svara þeirri spurningu hvað er það sem gerir vöru mína eða þjónustu framúrskarandi. Hugmynd hans er að skrifa 15 orð eða minna sem skilgreinir vörumerkið.  Hvað er það sem greinir þig frá hinum t.d. samstarfsfólki.  Við fyrstu sýn þá virðist þetta ekki mikið mál og greinin sjálf er bæði skemmtileg, auðlesin og greinagóð.  Ég ákvað að skella mér í 15 orða áskorunina ! Ja hérna hvað þetta var erfitt ég byrjaði á þriðjudaginn eftir að hafa lesið greinina og hef verið að kíkja yfir þetta reglulega síðan.  Þetta er í fyrsta sinn sem ég hugsa um sjálfan mig sem vörumerki og það er mun erfiðara en ég hélt. Í hvert sinn sem ég las yfir listann minn fannst mér ég óþarflega góð með mig.  Svo ég reyndi að fara eftir því sem segir í greininni og horfa á mig hlutlaust  þ.e.  ekki sem deildastjóra, leikskólakennara, verkefnastjóra, menningartengill, Trúnaðarmann og svo mætti lengi telja heldur frekar beint á það sem ég er góð í burt séð frá því hvort það sé í starfslýsingu minni.

Mín 15 orð eru: nýti mannauðinn,  sagnakona,  félagsleg færni, opin, hlustandi, fróðleiksfús , áhugasöm og  hugsa út fyrir rammann .  Þetta er það sem ég færi mínum vinnustað.

Mitt virði er s.s. að mestu félagslegt. Fyrir utan það að vera mjög áhugasöm um velferð nemendur mína og vilja hag þeirra sem bestan þá er ég góð í mannlegum samskiptum .  Ég hef hæfileika til að nýta mannauð fólksins í kringum mig og sé oft hæfileika hjá fólki sem öðrum finnst erfitt að vinna með. Fólki finnst oftast gott að tala við mig og ég lendi á trúnó með ótrúlegasta fólki.  Þetta nýtist mér mjög vel í vinnu þar sem ég á mjög gott samstarf  við foreldra og aðra aðstandendur barnanna . Þetta hefur líka nýst mér vel þegar ég starfaði hjá verkalýðsfélögum þar sem ég þurfti oft að eiga við fólk í allskonar ástandi .  Ég get hugsað út fyrir ramman og sé oft tækifæri sem aðrir hafa ekki nýtt. Ég er góður stjórnandi og hugsa lausnamiðað.  Ég hef tek að mér óhefðbundinn  verkefni í skólanum  s.s. verkefnastjórn í erlendu samstarfi .

Markaðssetning mín hingað til hefur aðallega  farið fram  „maður á mann“  en ég ætti að skrifa t.d. í hverfisblaðið  og taka þátt í fleiri kynningum t.d. á stóra leikskóladeginum.

http://www.fastcompany.com/28905/brand-called-you

Skildu eftir svar