Í þessari viku fór tíminn aðallega í að vinna viðtalsverkefni.  Tók viðtal við framkvæmdastjóra Fræðslunetsins Símenntun á Suðurlandi og reyndi að tekja það sem kom fram við textann í bók Kotler og Fox.  Mér fannst ég fá skýrari sýn bæði á markaðssetningu FnS og textann í bókinni.  Ef til vill nýtist hann betur en mér fannst þegar ég las textann án þess að tengja hann við veruleikann á Íslandi.  Ég hlakka til að vinna næsta verkefni sem verður hópverkefni um greiningu vegna markaðssetningar og ekki síður stóra verkefnið sem verður vonandi um markaðssetningu fimmtu stoðar menntakerfisins á Íslandi.

Skildu eftir svar