Pinterest sem markaðsverkfæri... Meira...
... Meira...
Podcast – hvað er það og hvernig nota ég það?
Podcast eru stuttar hljóðupptökur á netinu en nafnið er markaðssetning í sjálfu sér – sett saman úr orðunum broadcast og ipod. Það varð þó ekki til af frumkvæði eplarisans í ameríkunni, segir sagan, en tenging engu að síður. Á íslandi getum við notað orðið hlaðvarp (afleiðing af orðinu tónhlaða sem er nýyrði yfir ipod). Það er auðvelt fyrir hinn almenna notanda að hlusta á og sækja hlaðvarp og allt sem þarf er tónlistarspilari í viðkomandi tæki; tölvu, spjaldtölvu, pöddum og poddum.... Meira...
Vefstofur-Veffundir
Vefstofur-Veffundir... Meira...
Menntun á markaði
Á leslista námskeiðsins er bókin Marketing Higer and Further Education eftir Cibbs & Knapp. Bókin er gefin út árið 2002; er tæpar 150 síður í 11 köflum. Hún fjallar um viðfangsefnið út frá breskum og alþjóðlegum vestrænum sjónarhól. Viðfangsefnið er tekið fyrir á hagnýtum forsendum eins og bókin Sigur í samkeppni og bók Kotler & Fox. Eftir að hafa lesið fyrstu fjóra kaflana finnst mér hún sú bók af þessum þremur sem kemst næst því að fjalla um markaðssetningu menntunar eins og hún blasir við í okkar samfélagi, enda er íslenska menntakerfið, enn sem komið er að minnsta kosti, líkara því breska en því bandaríska. Vitnað í Tony Blair í upphafi og áherslu hann á menntamálin í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Mér finnst einnig áhugaverð pæling um fjögur svið þar sem markaðssetning getur nýst í menntun. Í fyrsta lagi vegna þess að námsframboð er mjög fjölbreytt. Í öðru lagi vega flókins félagslegs hlutverks menntastofnanna. Í þriðja lagi vegna vaxandi krafna um hagkvæmni í rekstri og í fjórða lagi vegna þess að nemendur eru upplýstir neytendur þar sem margir undirhópar þurfa mismunandi tilboð. Góð tilraun, finnst mér, til að tengja saman markaðssetningu og menntun án þess að vera með innihaldslausan frasa um að allt sé á markaði.... Meira...
Google+ og YouTube
YouTube er núna í eigu Google og þar af leiðandi tengist Youtube aðgangurinn bæði G-mailinu og Google+ forritinu.... Meira...
Facebook og Linkedin sem markaðstæki
Viðtal við Inga Vífil Guðmundsson um Facebook og Linkedin.
Ég var svo heppin að hitta ungan mann sem heitir Ingi Vífill Guðmundsson og starfar við markaðssetningu á samfélagsmiðlunum. Til þess að fræðast um þennan geira markaðssetningarinnar átti ég viðtal við Inga Vífil, og fer viðtalið hér á eftir.
Helstu áhersluatriðin varðandi Facebook sem markaðstæki eru þessi:
– Fb er samtal milli seljanda og kaupanda.
– Fb er óheyrilega öflugt tæki til að ná til margra.
– Fb hefur fengið mikla útbreiðslu bæði hérlendis og erlendis.
– Hægt er að ná miðun (targeting) með því að stilla inn á hópa eða landshluta.
– Fb er einfalt í uppsetningu og notkun; góðar leiðbeiningar sem leiða mann áfram við uppsetninguna og svo er líka auðvelt að finna frekari leiðbeiningar á netinu.... Meira...
Blogg sem markaðstæki
Hvað er blogg?
Blogg er stytting á orðinu web log og er í eðli sínu röð stuttra frásagna sett fram í öfugri tímaröð, það er s.s. hægt að lesa aftur í tímann á bloggsíðum. Svo er mögulegt að notast við tög til þess að flokka og tengja blogg um sama eða svipað efni. Þá verður sömuleiðis auðvelt að tengja bloggfærslur ákveðnum orðum sem koma upp við leit í leitarvélum alnetsins. Í samkeppni um þátttakendur í fræðslu skiptir máli að finnast auðveldlega og blogg má nýta til þess að beina umferð að heimasíðu skóla eða fræðslustofnunar.... Meira...
Póstlistar / mailchimp
Póstlistar / Mailchimp.com... Meira...
Vefsíða/Heimasíða
Vefsíður ... Meira...