Allar færslur eftir Hróbjartur Árnason

Bókaklúbburinn kominn í loftið

Þá er ég búinn að setja upp bókaklúbb fyrir okkur.    (Sjá líka tengil efst hægramegin í efnisyfirliti vefsins.) Um er að ræða umræðuþræði. Þeir auðvelda okkur að fylgjast með umræðunni. 1) Þú býrð til nýjan þráð fyrir hvern kafla. Skrifaðu kaflaheitið í reitinn „Topic Title“. ATH í gráa reitnum sést að ég er búinn að búa til þráð fyrir fyrsta kaflann: 2) Þú tekur þátt í umræðunni um hvern kafla með því að opna fyrst þann þráð, og svara þar. 3) Taktu líka eftir „Brauðmolunum“, þeir sýna þér hvar þú ert stödd/staddur í umræðunni: Skiptumst á að sýna leiðtogahegðun með því að koma umræðunni af stað. Skrifið spurningu sem byggir á lestri ykkar á kaflanum og tengir umræðuna við okkar veruleika. Setjið svo að sjálfsögðu líka inn aðrar spurningar: Ef þið skiljið ekki eða viljið ræða afmarkaða hluta kaflans o.s.frv. Þetta er svæði til að velta bókinni og lestrinum fyrir sér. Ef þú lest eitthvað annað en þessa bók og vilt ræða það, getur þú annað hvort búið til nýjan þráð, eins og þráð fyrir hvern kafla í bókinni, eða búið til bloggfærslu og beðið okkur um að svara í athugasemdunum þar :-) Bloggfærslur geta verið sýnilegar öllum, eða bara þeim sem eru skráðir inn í kerfið. Ef þú vilt að bloggfærsla sé aðeins sýnileg þeim sem eru skráð inn í kerfið þá merkir þú hann sem Einkamál undir fyrirsögninni „Sýnileiki“.... Meira...

Námskeiðið fer af stað, haustið 2017

Námskeiðið Markaðssetning fræðslutilboða fyrir fullorðna hefst með stuttum fundi þriðjudaginn 29. ágúst. kl. 15-16:30 í stofu H-001. Það verður hægt að taka þátt í fundum námskeiðsins yfir netið:  Þangað til er um að gera að skoða kennsluáætlun og bókalista ásamt því að kanna þennan vef aðeins. Hann hefur verið notaður á námskeiðinu í nokkur ár. Þannig að hér eru spor eftir fyrri nemendur. Kíkið endilega á handbókina, hún er skrifuð af nemendum. Þá er um að gera að panta aðal bókina strax. Ætli það sé ekki fljótlegast og ódýast að panta hana notaða. Ég hlakka til að sjá ykkur á fundinum!... Meira...

Námskeiðið fer í gang haustið 2014

Italy-2153 - Capo Street Market Námskeiðið Markaðssetning fræðslu fyrir fullorðna er að fara í gang. Við byrjum á því að vinna nokkur lítil verkefni saman, hér á námskeiðsvefnum og í Facebook hóp námskeiðsins. Skráið ykkur sem sagt í: Svo er eitthvað efni hér sem þið getið byrjað að skoða, t.d. kennsluáætlun frá því að námskeiðið var kennt síðast. Það var niðurstaða samningaviðræðna á fyrstu staðlotunni þá. Nú er annað námskeið, og við semjum upp á nýtt ;-) Ég ætla að biðja ykkur um að lesa bókina Strategic Marketing for Educational Institutions (2nd Edition) Sjá hana og aðrar áhugaverðar bækur á bókalista námskeiðsins. Aðal bókin ætti að vera komin i bóksölu nema í Stakkahlíð.... Meira...

Málið er að dreifa hugmyndinni

Seth Godin hefur vakið athygli á sér fyrir margar góðar markaðshugmyndir. Hann hefur verið ötull við það að koma hugmyndum eins og „Viral Marketing„, „Permission Marketing“ og „Tribes“ á kortið. ==> Kynnið ykkur þær stuttlega fyrir laugardaginn. Hér er fyrirlestur sem hann hélt á TED um nauðsyn þess að vera eftirtektarverður .ætli maður að ná árangri í markaðssetningu: First ten: Blogfærslan sem Seth Godin vitnar til um að ef þeir fyrstu tíu sem sjá hugmyndina þína / Þjónustuna / námskeiðið hafa ekki áhuga þá er eins gott að sleppa því…... Meira...

Aftur í nám…

Ég sit hér og skemmti mér við að lesa meistararitgerð (prófdómari). Hún fjallar um fólk sem fer aftur til náms eftir langt hlé. Sá hópur er einn af stóru markhópum símenntunarmiðstöðvanna á Íslandi. Það eru til nokkrar meistararitgerðir byggðar á viðtölum við fólk sem fór aftur í nám að loknu hlé. … Í niðurstöðum þessara ritgerða eru upplýsingar sem geta nýst okkur á þessu námskeiði. So: Hér er skyndiverkefni sem ég ætla að biðja alla að taka þátt í, gefðu þér klukkustund:
  1. Kíktu í Skemmu og líka í Gátt 2010 og veldu þér einhverja ritgerð / grein til að skanna. Skráðu sem svar við þessum pósti hvaða ritgerð/grein þú ætlar að skanna.
  2. Skrifaðu svo annað svar með stikkorðum: hvað hvetur hvað letur þennan markhóp í nám
  3. Svo þegar við höfum safnað gögnum skulum við ræða um það hvað það þýðir…
ég hlakka til að sjá hvað kemur út úr þessu... Meira...